Fotbolti.net
16.05.26 - 16:35
Brynjar Ingi Erluson

Guðrún bikarmeistari með Hammarby

Guðrún og Hammarby eru sænskir bikarmeistarar árið 2026

Guðrún og Hammarby eru sænskir bikarmeistarar árið 2026

Canon

Mynd: Hammarby/X

Hertz
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Hammarby unnu Häcken, 1-0, í úrslitum sænska bikarsins á 3Arena í Stokkhólmi í dag.
Hammarby náði fram hefndum aðeins viku eftir að hafa tapað fyrir Häcken í úrslitum Evrópubikarsins.

Mari Nygaen skoraði sigurmark Hammarby í framlengingu sem tryggði liðinu bikarmeistaratitilinn annað árið í röð og fimmta sinn í sögunni.

Guðrún átti frábæran leik í vörn Hammarby en hún sneri aftur í liðið fyrir úrslitaleikinn eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla.

Fanney Inga Birkisdóttir var í marki Häcken og þá kom Thelma Karen Pálmadóttir inn af bekknum í síðari hálfleik.

Guðrún er leikmaður liðsins og Arnór Smárason er yfirmaður fótboltamála

Guðrún er leikmaður liðsins og Arnór Smárason er yfirmaður fótboltamála

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.