ÍBV er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikar kvenna eftir 5-0 stórsigur liðsins á Tindastól. FHL er einnig komið eftir að hafa unnið Fylki, 2-1, í Árbæ.
Eyjakonur hafa verið á flugi í Bestu deildinni og tóku þær það með sér inn í bikarkeppnina.
Þær komust í fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik gegn Stólunum. Allison Patricia Clark skoraði á 6. mínútu er hún fékk boltann í teignum, sneri og hamraði honum í netið.
Þóra Björg Stefánsdóttir gerði annað markið á 21. mínútu. Tea Lundmark varði bolta út á Þóru sem skallaði honum í markið og þá gerði Milena Mihaela Patru þriðja markið er hún stal boltanum af Simone Thorst og skoraði framhjá Teu.
Þóra gerði annað mark sitt á 40. mínútu og fjórða mark Eyjaliðsins áður en Tanja Harðardóttir rak síðasta smiðshöggið rúmum hálftíma fyrir leikslok.
Þægilegt hjá Eyjakonum sem eru komnar með farseðilinn í 8-liða úrslit. FHL mun fara með þeim þangað eftir 2-1 útisigur liðsins á Fylki.
Alexis Simone Wright skoraði fyrra mark FHL undir lok fyrri hálfleiks og bætti Peyton Marie Felton við öðru snemma í þeim síðari.
Katla Sigrún Elvarsdóttir minnkaði muninn undir lok leiksins, en lengra komst Fylkir ekki. FHL mun því fara í 8-liða úrslitin, en dregið verður í 8-liða úrslit eftir leik Þróttar og Breiðabliks á eftir.
Úrslit og markaskorarar:
Tindastóll 0 - 5 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark ('6 )
0-2 Þóra Björg Stefánsdóttir ('21 )
0-3 Milena Mihaela Patru ('32 )
0-4 Þóra Björg Stefánsdóttir ('40 )
0-5 Tanja Harðardóttir ('56 )
Lestu um leikinn
Fylkir 1 - 2 FHL
0-1 Alexis Simone Wright ('45 )
0-2 Peyton Marie Felton ('55 )
1-2 Katla Sigrún Elvarsdóttir ('89 )



