Newcastle United er með fastan verðmiða á Anthony Gordon, margir sóknarmenn eru orðaðir við Liverpool og þá er Eduardo Camavinga að íhuga að fara frá Real Madrid. Þetta er allt saman í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Newcastle United haggast ekki þegar það kemur að verðmiða enska landsliðsmannsins Anthony Gordon (25), en félagið vill fá 75 milljónir punda. Bayern München er komið langt í viðræðum við kappann um kaup og kjör. (Times)
Liverpool hefur enn fulla trú á sænska framherjanum Alexander Isak (26) og ætlar félagið að bæta við sóknarlínuna en það er að fylgjast með Yan Diomande (19) og Antonio Nusa (21) hjá RB Leipzig ásamt því að vera skoða Bradley Barcola (23), leikmann Paris Saint-Germain í Frakklandi, sem eru taldir bestu möguleikarnir til þess að aðstoða Isak í sókninni (i Paper)
Liverpool gæti einnig reynt að fá Robin Roefs (23), markvörð Sunderland, í stað Alisson sem er líklega á leið til Juventus. (Caught Offside)
Ítalski varnarmaðurinn Michael Kayode (21) hefur verið orðaður við Juventus, en hann segist ánægður hjá Brentford og ekki að hugsa um að fara frá félaginu. (Tuttosport)
Franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga (23) gæti íhugað að yfirgefa Real Madrid eftir að hafa misst af sæti með franska landsliðinu á HM. Tottenham er sagt áhugasamt. (Teamtalk)
Tottenham mun einnig reyna að fá Maghnes Akliouche (24) frá Mónakó, það er að segja ef hann er falur í sumar. (Football Insider)
Denzel Dumfries (30), varnarmaður Inter, er með klásúlu í samningi sínum við Inter sem gerir öðrum félögum kleift að kaupa hann fyrir 25 milljónir evra. Klásúlan er aðeins virk í nokkra daga í júlí. (Gazzetta dello Sport)
Nottingham Forest er að undirbúa samnnigaviðræður við Vitor Pereira, en félagið vill gefa honum nýjan langtímasamning. Portúgalinn gerði átján mánaða samning við Forest í febrúar og hefur tekist að bjarga þeim frá falli. (Athletic)




