Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 16:23
Brynjar Ingi Erluson
Salah skaut á Slot - „Vil sjá Liverpool fara aftur í þungarokksboltann“
Mo Salah saknar þess að spila þungarokksfótbolta
Mo Salah saknar þess að spila þungarokksfótbolta
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, hefur skotið föstum skotum að Arne Slot, stjóra liðsins, en hann sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann kallaði eftir breytingum á leikstíl og auðkenni liðsins.

Yfirlýsing Salah kemur sólarhring eftir 4-2 tap Liverpool gegn Aston Villa.

Tímabilið hjá Liverpool hefur verið vonbrigði og hafa stuðningsmenn kallað eftir höfði Slot. Samkvæmt ensku miðlunum fá þeir ekki sínu framgengt, en Liverpool er ekki með nein plön um að reka Slot á næstunni.

Salah sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann virðist greinilega gagnrýna leikstíl Slot. Egyptinn vill að Liverpool fari aftur í sama leikstíl og liðið notaði undir Jürgen Klopp.

„Ég hef séð þetta félag breytast úr því að efast og í það að trúa, og frá því að trúa yfir í meistara. Það tók mikla vinnu og ég gerði alltaf allt sem ég gat til að hjálpa félaginu að komast á þennan stað. Ekkert fyllir mig meira stolti en það.“

„Það að við séum að tapa enn einum leiknum á þessu tímabili er ótrúlega sársaukafullt og ekki það sem stuðningsmennirnir verðskulda. Ég vil sjá Liverpool fara aftur í þetta þungarokks sóknarlið sem mótherjarnir óttuðust og verða aftur að liði sem vinnur titla. Það er fótboltinn sem ég þekki og kann að spila, og þurfum við að endurheimta það auðkenni og ekki sleppa því. Þetta er ekkert samningsatriði og allir sem ganga í raðir félagsins verða að aðlagast því.“

„Að vinna nokkra leiki hér og þar er ekki það sem Liverpool á að standa fyrir. Öll lið vinna leiki.“

Liverpool verður alltaf félag sem mun eiga sér stað í hjarta mínu og fjölskyldu minnar. Ég vil sjá félagið ná árangri löngu eftir að ég er farinn.“

„Eins og ég hef alltaf sagt þá er það algert lágmark að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili og mun ég gera allt sem ég get til að það verði að veruleika,“
sagði Salah enn fremur í yfirlýsingu sinni.

Liverpool getur tryggt Meistaradeildarsætið um næstu helgi er liðið tekur á móti Brentford í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
banner
banner