Fotbolti.net
16.05.26 - 20:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stuðningsmenn réðust á leikmenn Hearts - „Svívirðilegt"

Tómas Bent Magnússon er leikmaður Hearts

Tómas Bent Magnússon er leikmaður Hearts

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Hearts hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að stuðningsmenn hlupu inn á völlinn undir lok leiks liðsins gegn Celtic þar sem Celtic vann 3-1 og tryggði sér skoska titilinn um leið.
Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur
TENGT EFNI

Celtic skoskur meistari eftir dramatískar lokamínútur

Leikmenn Hearts neyddust til að yfirgefa völlinn áður en uppbótatímanum lauk þar sem stuðningsmenn ruddust inn á völlinn eftir að Callum Osmand innsiglaði sigur Celtic og beittu leikmönnum og starfsliði Hearts líkamlegu og munnlegu ofbeldi.

„Heart of Midlothian fordæmir harðlega hina svívirðilegu atburði á Celtic Park í dag sem hafa enn og aftur orðið skoskri knattspyrnu til skammar. Tilkynningar um alvarlegt líkamlegt og munnlegt ofbeldi gagnvart leikmönnum okkar og starfsfólki, bæði á vellinum og annars staðar, eru hræðilegar. Við erum að rannsaka þetta ítarlega í samvinnu við lögregluna á Skotlandi. Við munum ekki tjá okkur frekar að svo stöddu annað en að segja að það sé algjörlega óásættanlegt að leikmenn okkar og starfsfólk hafi verið sett í þessa stöðu," segir í yfirlýsingu Hearts.

Þar kemur einnig fram að allir á þeirra vegum hafi yfirgefið svæðið án þess að fara í viðtöl við fjölmiðla. Hearts býst við að fótboltayfirvöld grípi til harðra refsiaðgerða.

„Þetta tímabil hefur Hearts vakið mikla athygli fótboltaáhugamanna, ekki aðeins í Skotlandi heldur um allan heim. Við vottum Derek McInnes, starfsfólki hans, aðalliðinu og stuðningsmönnunum virðingu sína, sem hafa gert félagið stolt á þessu tímabili. Enginn þeirra verðskuldaði þá svívirðilegu atburði sem áttu sér stað."

Tómas Bent Magnússon er leikmaður Hearts en hann gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.