Fotbolti.net
16.05.26 - 15:46
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Kane skoraði þrennu í lokaumferðinni - Stuttgart í Meistaradeildina

Kane kláraði tímabilið með stæl

Kane kláraði tímabilið með stæl

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði þrennu er Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu 5-1 stórsigur á Ísaki Bergmann Jóhannessyni og félögum í Köln í lokaumferðinni í dag. Stuttgart var fjórða liðið inn í Meistaradeildina og þá er ljóst að Wolfsburg mun fara í umspil um sæti í deildinni.
Kane endaði sem langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 36 mörk, aðeins fimm frá því að jafna met Robert Lewandowski frá 2021.

Hann skoraði fyrsta mark dagsins eftir fyrirgjöf frá Joshua Kimmich, annað markið eftir aukaspyrnu á 13. mínútu og síðan það þriðja um tuttugu mínútum fyrir leikslok. Tom Bischof og Nicolas Jackson skoruðu einnig fyrir Bayern.

Jackson, Leon Goretzka og Raphael Guerreiro fengu sérstakar viðurkenningar og gjafir fyrir leikinn, en þeir munu allir yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Bayern skoraði 122 mörk í deildinni sem er nýtt met topp fimm deildum í Evrópu á þessari öld.

Ísak Bergmann kom inn af bekknum hjá Köln í seinni hálfleik, en hann og félagar hans spila áfram í efstu deild á næstu leiktíð. Köln hafnaði í 14. sæti með 32 stig, þremur fyrir ofan Wolfsburg sem er á leið í fallumspil.

Stuttgart gerði 2-2 jafntefli við Eintracht Frankfurt og reyndist það nóg fyrir Stuttgart til að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð. Hoffenheim og Bayer Leverkusen fara í Evrópudeildina og þá mun Freiburg taka Sambandsdeildarsæti, nema liðið nái að vinna Aston Villa í úrslitum Evrópudeildarinnar. Sigurvegarinn þar spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Heidenheim og St. Pauli eru fallin niður um deild, en Wolfsburg mun spila annað hvort við Hannover, Elverberg eða Paderborn um sæti í efstu deild.

Heidenheim 0 - 2 Mainz
0-1 Phillip Tietz ('7 )
0-2 Nadiem Amiri ('43 )

Union Berlin 4 - 0 Augsburg
1-0 Andrej Ilic ('10 )
2-0 Andrej Ilic ('42 )
3-0 Andras Schafer ('54 )
4-0 Woo-Yeong Jeong ('89 )

Borussia M. 4 - 0 Hoffenheim
1-0 Hugo Bolin ('14 )
2-0 Haris Tabakovic ('23 )
3-0 Kevin Diks ('81 )
4-0 Robin Hack ('90 )
Rautt spjald: Tim Lemperle, Hoffenheim ('46)

Freiburg 4 - 1 RB Leipzig
1-0 Niklas Beste ('24 )
2-0 Igor Matanovic ('26 )
2-1 Assan Ouedraogo ('33 )
3-1 Matthias Ginter ('47 )
4-1 Derry Scherhant ('75 )

Werder 0 - 2 Borussia D.
0-1 Serhou Guirassy ('59 )
0-2 Yan Couto ('90 )

Bayern 5 - 1 Koln
1-0 Harry Kane ('10 )
2-0 Harry Kane ('13 )
2-1 Said El Mala ('18 )
3-1 Tom Bischof ('22 )
4-1 Harry Kane ('69 )
5-1 Nicolas Jackson ('83 )

Eintracht Frankfurt 2 - 2 Stuttgart
0-1 Chema Andres ('10 )
0-2 Nikolas Nartey ('45 )
1-2 Jonathan Burkardt ('72 , víti)
2-2 Jonathan Burkardt ('90 , víti)

Bayer 1 - 1 Hamburger
0-0 Patrik Schick ('25 , Misnotað víti)
0-1 Fabio Vieira ('61 )
1-1 Jarell Quansah ('78 )

St. Pauli 1 - 3 Wolfsburg
0-1 Konstantinos Koulierakis ('37 )
1-1 Abdoulie Ceesay ('57 )
1-2 Nikola Vasilj ('64 , sjálfsmark)
1-2 Christian Eriksen ('77 , Misnotað víti)
1-3 Dzenan Pejcinovic ('80 )
Ísak Bergmann verður áfram í efstu deild

Ísak Bergmann verður áfram í efstu deild

Canon

Mynd: EPA

Stuttgart fer í Meistaradeildina

Stuttgart fer í Meistaradeildina

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Bayer000
3Bayern000
3Hamburger2+36
4Borussia D.000
4Borussia M.2+14
5Borussia M.000
5Hoffenheim2+14
6Eintracht Frankfurt000
6Freiburg2+14
7Elversberg000
7Schalke 041+23
8Freiburg000
8Hannover1+13
9Hertha203
9Hamburger000
10Hoffenheim000
10Stuttgart2-13
11Koln000
11Wolfsburg2-23
12Augsburg2-11
12Mainz000
13Paderborn000
13Eintracht Frankfurt2-11
14RB Leipzig000
14Bayer2-21
15Schalke 04000
15Mainz2-20
16Wolfsburg34-2429
16Koln2-30
16Stuttgart000
17Union Berlin000
17Heidenheim34-3126
17RB Leipzig2-30
18Werder000
18Werder2-30
18St. Pauli34-3126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.