Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Milan skoðar Xhaka og Pasalic
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá hreyfingum í herbúðum AC Milan sem er að leita að leikmönnum til að styrkja hópinn sinn fyrir næstu leiktíð.

Miklu vonbrigðatímabili er lokið fyrir Milan og er liðið að selja mikilvæga leikmenn frá sér í sumar.

Romano segir að Milan sé að reyna að krækja í Granit Xhaka til að styrkja miðjuna sína eftir söluna á Tijjani Reijnders.

Xhaka er 32 ára gamall og sinnti mikilvægu hlutverki í liði Leverkusen undir stjórn Xabi Alonso. Óljóst er hversu stórt hlutverk hann fær með byrjunarliðinu eftir að Erik ten Hag tók við stjórn.

Xhaka er með þrjú ár eftir af samningi við Leverkusen og hefur Massimiliano Allegri þjálfari Milan miklar mætur á honum, en tyrkneska stórveldið Galatasaray er einnig að reyna að kaupa hann í sínar raðir.

Milan er einnig að reyna að krækja í Luka Modric á frjálsri sölu frá Real Madrid og efnilegan varnarmann frá Bosníu sem heitir Kevin Pasalic.

Pasalic er fæddur 2007 og er einnig eftirsóttur af AS Roma, en Milan ætlar að reyna að ganga frá félagaskiptunum á Pasalic í vikunni.

Pasalic er falur á frjálsri sölu eftir að hafa alist upp hjá Íslendingaliði IFK Norrköping.

Pasalic á leiki að baki fyrir U18 og U17 landslið Svía.
Athugasemdir
banner
banner