Fotbolti.net
16.07.15 - 15:05
Arnar Daði Arnarsson

Davíð og Hrannar Einarssynir í Fram (Staðfest)

Davíð í leik með Fylki.

Davíð í leik með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Framarar hafa fengið tvo leikmenn í dag. Sóknarmaðurinn, Davíð Einarsson kemur til félagsins á láni frá Fylki og þá hefur Hrannar Einarsson skipt yfir í Fram frá ÍR.

Davíð hefur komið við sögu í fjórum leikjum með Fylki í sumar og skorað eitt mark.
Hrannar Einarsson er 21 árs og lék með Breiðablik í yngri flokkunum.

Báðir léku þeir með KR í 2.flokki þar sem Davíð er uppalinn.

„Hrannar er fjölhæfur leikmaður og getur leyst margar stöður á vellinum en er miðjumaður að upplagi. Við FRAMarar fögnum komu Hrannars og hlökkum til að sjá hann á vellinum,\" segir á heimasíðu Fram.

Báðir eru þeir komnir með leikheimild með Fram og eru því löglegir með liðinu á laugardaginn, þegar Fram tekur á móti KA í 1. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.