Fotbolti.net
16.07.15 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson

Jeremain Lens til Sunderland (Staðfest)

Jeremain Lens

Jeremain Lens

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fest kaup á hollenska sóknarmanninum Jeremain Lens.
Lens kemur til Sunderland frá Dynamo Kiev og gerir fjögurra ára samning við Dick Advocaat og félaga.

Sunderland borgar Dynamo Kiev átta milljónir punda fyrir Lens.

Þessi 27 ára gamli leikmaður á 29 landsleiki að baki fyrir Holland og hefur skorað í þeim átta mörk.

Lens þekkir vel til Advocaat eftir að hafa leikið undir hans stjórn tvívegis, fyrst með AZ Alkmaar og seinna með PSV.

Þetta eru þriðju kaup Sunderland í sumar en áður hafði liðið fjárfest í þeim Adam Matthews og Sebastian Coates.

Heimild: Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.