16.07.15 - 11:45
Magnús Már Einarsson
Robinho til Kína (Staðfest)

Verður í treyju númer 60 í Kína.

Mynd: Getty Images

Verður í treyju númer 60 í Kína.

Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hefur gengið til liðs við Guangzhou Evergrande í Kína.
Hinn 31 árs gamli Robinho hefur skrifað undir hálfs árs samning í Kína.
Hann mun leika undir stjórn Luiz Felipe Scolari hjá Guangzhou Evergrande en í síðustu viku keypti félagið einnig brasilíska miðjumanninn Paulinho frá Tottenham.

Robinho varð árið 2008 dýrasti leikmaðurinn í sögu Englands þegar hann kom til Manchester City frá Real Madrid á 32,5 milljónir punda.
Á ferli sínum hefur Robinho einnig leikið með Real Madrid, AC Milan sem og Santos í heimalandi sínu þar sem hann var síðast.