Fotbolti.net
16.07.15 - 06:30
Arnar Geir Halldórsson

Ross Turnbull til Leeds (Staðfest)

Ross Turnbull til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fest kaup á enska markverðinum Ross Turnbull.
Turnbull kemur til Leeds frá Barnsley og gerir tveggja ára samning en Turnbull er 30 ára gamall. Hann hefur farið víða og var meðal annars á mála hjá Chelsea á árunum 2009-2013.

Þessi fyrrum unglingalandsliðsmarkvörður Englands mun koma til með að keppa við Ítalann Marco Silvestri um markvarðarstöðuna á Elland Road.

Leeds endaði í 15.sæti Championship deildarinnar á síðustu leiktíð en stefna á að gera betri hluti á næstu leiktíð og hafa verið að styrkja lið sitt undanfarið.

Í byrjun þessa mánaðar var framherjinn Chris Wood keyptur til félagsins fyrir tæpar 3 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.