Fotbolti.net
16.07.15 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Scott Ramsay í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Ramsay fagnar marki með Grindavík.

Ramsay fagnar marki með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Scott Ramsay hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Reyni Sandgerði en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ramsay hóf feril sinn á Íslandi með Reyni árið 1996 þegar hann hjálpaði liðinu upp úr 2. deildinni.
Þessi skoski reynslubolti skipti yfir í Grindavík árið 1998 þar sem hann hefur spilað nánast allan sinn feril fyrir utan árin 2003 til 2006 þegar hann spilaði með KR, Keflavík og Víði Garði.

Hinn 39 ára gamli Ramsay mun hjálpa Reyni Sandgerði í topppbaráttunni í 3. deildinni en liðið er í 3. sæti deildarinnar með 19 stig líkt og Kári sem er í 2. sætinu.

Á ferli sínum á Íslandi hefur Ramsay samtals skoraði 51 mark í 319 deildar og bikarleikjum.

Ramsay gæti spilað með Reyni gegn Berserkjum í 3. deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.