Fotbolti.net
16.07.15 - 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Younes Kaboul til Sunderland (Staðfest)

Younes Kaboul er kominn til Sunderland

Younes Kaboul er kominn til Sunderland

Canon

Mynd: Sunderland

Franski varnarmaðurinn, Younes Kaboul, hefur gengið til liðs við Sunderland frá Tottenham.

Kaupverð er ekki gefið upp, en leikmaðurinn gerir fjögurra ára samning við félagið.
\"Mér líður frábærlega yfir því að vera orðinn leikmaður og það er heiður að ganga til liðs við þetta félag,\" sagði Kaboul eftir að félagsskiptin voru kynnt.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar, en áður hafði félagið fengið þá Sebastian Coates, Adam Matthew og Jermain Lens til liðs við sig.

Heimild: Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.