Fotbolti.net
16.07.20 - 14:19
Elvar Geir Magnússon

Aubameyang bálreiður yfir því að Trent fékk ekki rautt

Trent Alexander-Arnold var heppinn að fá ekki rautt.

Trent Alexander-Arnold var heppinn að fá ekki rautt.

Canon

Mynd: Skjáskot

Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Arsenal, botnar ekkert í því af hverju Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool, fékk ekki rauða spjaldið í viðureign liðanna í gær.

Alexander-Arnold var heppinn að fá ekki rautt þegar hann var illa tímasettur og fór með takkana í Bukayo Saka.

Alexander-Arnold fékk gult spjald frá Paul Tierney dómara og þrátt fyrir VAR myndbandsdómgæslukerfið var gulu ekki breytt í rautt.
Aubameyang skundaði fram á ritvöllinn og undraði sig á Twitter af hverju VAR hefði misst af þessu.

Saka var heppinn og meiddist ekki. Hann hjálpaði Arsenal að vinna 2-1 sigur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.