Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. ágúst 2019 09:33
Fótbolti.net
Kvennalið KR gefur út baráttulag fyrir bikarúrslit
Selfoss-KR 17:00 á morgun
Frá upptökum.
Frá upptökum.
Mynd: KR
Það er vel þekkt að lið sem eru á leið á stórmót eða úrslitaleiki búa til stemningslag með þekktum flytjendum. Ensku landsliðin í den gerðu þetta reglulega og unnu með hljómsveitum eins og New Order, The Farm og hver getur gleymt laginu Vindaloo með Fat Les. En það er nokkuð langt síðan þetta var gert síðast og þessi flotta hefð virðist vera að leggjast af.

Núna hefur kvennalið KR, sem spilar úrslitaleik í Mjólkurbikarnum á morgun, endurvakið þessa stórskemmtilegu hugmynd. Frá því að íslenska landsliðið í handbolta söng „Við gerum okkar besta" þá hefur ekkert íslenskt félagslið stigið jafn afgerandi inn í upptökustudíó og núna. Lagið, sem heitir Meistaravellir, var unnið í miklu samstarfi við Steinunni Jónsdóttir sem þekkt er úr Amabadama og Reykjavíkurdætrum. Steinunn, sem skrifaði texta lagsins, dreif einnig Röggu Holm, sem samdi og flutti rapp kaflann í laginu, ogsöngkonuna Matthildi með sér í studíóið. Úlfur Eldjárn sá um tónlistarhliðina að mestu.

Lagið er baráttulag og þótt það fjalli um KR þá er einnig hægt að sjá víðari merkingu í því fyrir kvennaboltann almennt hér á landi. Þetta er því liður að auka þá athygli sem íslenski kvennaboltinn er að fá á Íslandi og beina kastljósinu að þeim miklu gæðum sem eru þar til staðar.

Lag: Steinunn Jóns og Úlfur Eldjárn
Upptökustjórn: Múskat músík - muskat.is
Texti: Steinunn Jónsdóttir og Ragnhildur Jónasdóttir
Takk fyrir hjálpina Gnúsi Yones og Studio History

Hér má hlusta á lagið.


Athugasemdir
banner
banner