Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur trú á að brasilíski miðjumaðurinn Fred geti gert góða hluti á komandi tímabili.
Fred náði ekki að vekja mikla lukku á síðasta tímabili eftir að hann kom frá Shakhtar Donetsk á 52 milljónir punda í fyrrasumar.
Fred náði ekki að vekja mikla lukku á síðasta tímabili eftir að hann kom frá Shakhtar Donetsk á 52 milljónir punda í fyrrasumar.
„Lið spila alltaf betur ef þau eru búin að spila sig saman, hafa sterkan grunn og fá ekki á sig mörk," sagði Solskjær.
„Þau góðu lið sem ég spilaði í voru alltaf með sterkan grunn, öflugan markvörð og varnalínu og við vonumst til að það hjálpi sóknar og miðjumönnunum."
„Við höfum trú á að Fred muni eiga gott tímabil."
Athugasemdir