Fotbolti.net
16.08.26 - 20:06
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var gríðarlega mikil skemmtun í boði í Bestu deild karla í dag þegar sextán mörk voru skoruð í þremur leikjum.
Íslandsmeistarar Víkings R. höfðu betur á útivelli gegn FH og juku þannig forystu sína á toppi deildarinnar um tvö stig þar sem KR gerði jafntefli á sama tíma.

Víkingar lentu undir í Hafnarfirði en svöruðu fyrir sig með þremur mörkum. Ísak Óli Ólafsson skoraði fyrir FH áður en Helgi Guðjónsson og Gylfi Þór Sigurðsson snéru stöðunni við fyrir leikhlé.

Gunnar Vatnhamar setti þriðja mark gestanna í síðari hálfleik og tókst heimamönnum að minnka muninn á 59. mínútu, en nær komust FH-ingar ekki. Víkingar voru sterkari aðilinn og innsigluðu sigurinn á lokamínútunum eftir skelfileg varnarmistök, svo lokatölur urðu 2-4.

Víkingur er með 48 stig eftir 19 umferðir, átta stigum meira heldur en KR sem gerði sex marka jafntefli við Breiðablik er liðin mættust í Vesturbæ.

Leikurinn byrjaði af gríðarlegum krafti þar sem bæði lið fengu dauðafæri áður en Kristófer Ingi Kristinsson náði forystunni fyrir Blika. Höskuldur Gunnlaugsson klúðraði vítaspyrnu skömmu síðar og tvöfaldaði Kristófer Ingi svo forystuna með laglegu marki beint úr aukaspyrnu á 38. mínútu.

Þremur mínútum síðar minnkaði Eiður Gauti Sæbjörnsson muninn en það liðu aðeins tvær mínútur þar til Ágúst Orri Þorsteinsson endurheimti forystu gestanna eftir frábært spil. Staðan var því 1-3 í leikhlé.

Kristófer komst nálægt því að fullkomna þrennu með vippu úr D-boganum í upphafi síðari hálfleiks en Gabríel Hrannar Eyjólfsson gerði vel að bjarga rétt fyrir framan marklínu. KR-ingar svöruðu þessari tilraun með tveimur mörkum á innan við mínútu til að jafna metin.

Ástbjörn Þórðarson minnkaði muninn og unnu heimamenn boltann strax aftur eftir miðju og kláraði Aron Sigurðarson sóknina með marki, svo staðan var orðin 3-3.

Bæði lið fengu tækifæri til að bæta mörkum við leikinn í síðari hálfleik en tókst ekki, svo niðurstaðan var jafntefli í sex marka leik sem hefði hæglega getað innihaldið tólf mörk. KR er sem fyrr segir í öðru sæti en Blikar sitja eftir í fjórða sæti, tíu stigum á eftir Vesturbæingum.

ÍBV tók að lokum á móti ÍA og skoraði Haukur Andri Haraldsson glæsilegt mark til að ná forystunni fyrir gestina frá Akranesi seint í bragðdaufum fyrri hálfleik. Haukur Andri fór framhjá fjórum varnarmönnum Eyjamanna áður en hann kláraði með marki.

Markús Páll Ellertsson tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik eftir að Viktor Jónsson vann boltann hátt uppi á vellinum og minnkaði Omar Sowe muninn fyrir heimamenn á 67. mínútu, en það kom ekki að sök fyrir gestina sem tvöfölduðu forystuna sína á ný aðeins fimm mínútum síðar. Þar var Viktor á ferðinni til að innsigla sigurinn, lokatölur 1-3. Eyjamenn komust nálægt því að minnka muninn á lokamínútunum en tókst ekki.

ÍA fer upp í efri hluta deildarinnar með þessum sigri á meðan ÍBV er í fallbaráttu með 17 stig eftir 19 umferðir.

FH 2 - 4 Víkingur R.
1-0 Ísak Óli Ólafsson ('31 )
1-1 Helgi Guðjónsson ('36 )
1-2 Gylfi Þór Sigurðsson ('45 )
1-3 Gunnar Vatnhamar ('54 )
2-3 Adolf Daði Birgisson ('59 )
2-4 Valdimar Þór Ingimundarson ('89 )

Lestu um leikinn



KR 3 - 3 Breiðablik
0-1 Kristófer Ingi Kristinsson ('24 )
0-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('27 , misnotað víti)
0-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('38 )
1-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('41 )
1-3 Ágúst Orri Þorsteinsson ('43 )
2-3 Ástbjörn Þórðarson ('54 )
3-3 Aron Sigurðarson ('55 )

Lestu um leikinn



ÍBV 1 - 3 ÍA
0-1 Haukur Andri Haraldsson ('39 )
0-2 Markús Páll Ellertsson ('48 )
1-2 Omar Sowe ('67 )
1-3 Viktor Jónsson ('72 )

Lestu um leikinn
Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Meistararnir auka forystuna eftir mikla markaveislu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.