16.08.26 - 15:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Samfélagsskjöldurinn: Arsenal pakkaði Man City saman

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arsenal 3 - 0 Manchester City
1-0 Riccardo Calafiori ('1 )
2-0 Kai Havertz ('28 )
3-0 Martin Odegaard ('48 )
1-0 Riccardo Calafiori ('1 )
2-0 Kai Havertz ('28 )
3-0 Martin Odegaard ('48 )
Arsenal vann leikinn um Samfélagsskjöldinn þar sem Englandsmeistararnir mættu bikarmeisturum Man City.
Riccardo Calafiori kom Arsenal yfir eftir 23 sekúndna leik. Myles Lewis-Skelly átti góða stungusendingu á hann og eftirleikurinn var auðveldur.
Kai Havertz bætti síðan öðru markinu við þegar hann skoraði af stuttu færi eftir að Christos Tzolis skallaði boltann á hann. Tzolis gekk til liðs við Arsenal frá Club Brugge í sumar. Gianluigi Donnarumma var í boltanum en missti hann inn.
Man City fékk færi undir lok fyrri hálfleiks en David Raya varði vel frá Erling Haaland. Jeremy Doku átti síðan skot en boltinn fór af Ben White og afturfyrir.
Martin Ödegaard innsiglaði síðan sannfærandi sigur Arsenal strax í upphafi seinni hálfleiks.
Tzolis fékk boltann vinstra megin og sendi á Ödegaard inn á teignum. Hann þóttist skjóta og setti Donnarumma á rassinn og renndi boltanum í netið.
Antoine Semenyo átti fast skot inn á teignum undir lokin en Raya varði vel frá honum. Nær komust City menn ekki og Arsenal vann mjög sannfærandi sigur.