Fotbolti.net
16.08.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd

Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd
Canon

Mynd: EPA

Spænski sóknarleikmaðurinn Ferran Torres er himinlifandi eftir að hafa fengið félagaskipti úr Barcelona til Paris Saint-Germain á dögunum.
PSG kaupir Ferran frá Barcelona (Staðfest)
TENGT EFNI

PSG kaupir Ferran frá Barcelona (Staðfest)

Torres, sem er 26 ára gamall og búinn að gera fimm ára samning við Frakklands- og Evrópumeistarana, er gríðarlega metnaðarfullur og vill vinna allt sem mögulegt er. Hann lék fyrir Barcelona í fjögur ár og neitaði að mæta á æfingar í sumar til að reka á eftir því að vera seldur.

Torres hefur á sínum ferli unnið bæði HM og EM með spænska landsliðinu, auk þess að eiga þrjá spænska deildartitla með Barcelona og einn Englandsmeistaratitil með Manchester City. Þá var hann ónotaður varamaður í liði Man City sem tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Chelsea 2021.

„Paris Saint-Germain er draumafélagið til að vinna Meistaradeildina. Ég er mjög spenntur fyrir verkefninu hér og ég hef alla tíð sagt að Luis Enrique (þjálfari PSG og fyrrum landsliðsþjálfari Spánverja) hefur verið mér sem föðurímynd í fótboltaheiminum," sagði Torres eftir að hafa verið kynntur sem nýr leikmaður risaveldisins.

„Þegar ég var með spænska landsliðinu veitti hann mér mikið sjálfstraust og það er stórkostlegt fyrir mig að fá að starfa aftur með honum."

Luis Enrique er einnig spenntur fyrir samlanda sínum sem er afar fjölhæfur. Nýi lærlingurinn getur spilað allar stöður í sóknarlínunni.

„Ég er ánægður með að hafa krækt í Ferran Torres, hann er gæðaleikmaður. Við þekkjum hann mjög vel og hann mun aðlagast eftir þörfum liðsins. Þetta er leikmaður sem getur spilað hvar sem er í sóknarlínunni og það eru frábærar fréttir að okkur hafi tekist að krækja í hann."

Kantmennirnir Maghnes Akliouche og Mika Godts voru einnig keyptir á dögunum en Khvicha Kvaratskhelia, Ousmane Dembélé og Désiré Doué verða væntanlega áfram í byrjunarliðinu til að mynda ógnarsterka sóknarlínu, á meðan Bradley Barcola gæti verið seldur.

Líklegt er að ungstirnin Quentin Ndjantou og Ibrahim Mbaye verði lánuð út.
Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd
Canon

Mynd: EPA

Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd
Canon

Mynd: EPA

Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd
Canon

Mynd: EPA

Ferran: Alltaf litið á Enrique sem föðurímynd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.