Fotbolti.net
16.08.26 - 14:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stefán skoraði með sinni fyrstu snertingu - Kolbeinn lagði upp í tíu marka leik

Stefán skoraði með sinni fyrstu snertingu - Kolbeinn lagði upp í tíu marka leik
Canon

Mynd: GAE

Stefán Ingi Sigurðarson kom sterkur inn af bekknum í 2-2 jafntefli Go Ahead Eagles gegn Feyenoord í hollensku deildinni í dag.

Stefán Ingi kom inn á sem varamaður á 80. mínútu og skoraði með skalla með sinni fyrstu snertingu og bjargaði stigi fyrir GA Eagles. Alfons Sampsted spilaði allan leikinn fyrir GA Eagles.
Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu í 3-1 sigri Twente gegn Zwolle. Go Ahead Eagles er í 3. sæti með fjögur stig eftir tvær umferðir en Twente er í 11. sæti með þrjú stig.

Það var markaveisla í Íslendingaslag í norsku deildinni þar sem Álasund fékk Valerenga í heimsókn.

Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasund en Davíð Snær Jóhannsson er fjarverandi vegna meiðsla. Kolbeinn Birgir Finnsson var í byrjunarliði Valerenga. Leiknum lauk með 5-5 jafntefli.

Kolbeinn lagði upp síðasta markið en Valerenga náði í jafntefli eftir að hafa verið þremur mörkum undir. Álasund er í 15. sæti með 15 stig eftir 17 umferðir en Valerenga er í 10. sæti með 21 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.