Fotbolti.net
16.08.26 - 08:30
Kári Snorrason

Sneri aftur í United treyjuna eftir tveggja ára fjarveru

Lék síðast fyrir liðið 12. desember 2024.

Lék síðast fyrir liðið 12. desember 2024.

Canon

Mynd: Manchester United

Marcus Rashford sneri aftur í lið Man Utd í gær þegar hann kom inn á í seinni hálfleik í æfingaleik Manchester United gegn AC Milan sem spilaður var í Wroclaw.

Þetta var í fyrsta sinn í tæp tvö ár sem Rashford lék fyrir uppeldisfélag sitt. Síðasti leikur hans fyrir United var gegn Viktoria Plzen í Evrópudeildinni 12. desember 2024.

Eftir þann leik fór hann í kuldann hjá Ruben Amorim og var lánaður, fyrst til Aston Villa og síðar Barcelona.

Rashford fékk góðar móttökur frá stuðningsmönnum þegar hann kom inn á og sýndi ágæta takta á þeim 30 mínútum sem hann fékk.

Enn er þó óvíst hvort hann verði áfram hjá United á komandi tímabili en glugginn lokar 1. september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.