Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 7. sæti

16.08.26

Spáin fyrir enska - 7. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við erum komin inn í Evrópubaráttuna í spá Fótbolta.net fyrir ensku úrvalsdeildina en í sjöunda sæti í þessari spá eru ríkjandi Evrópudeildarmeistarar Aston Villa.
Aston Villa undir stjórn Unai Emery heldur áfram að vera eitt sterkasta lið Englands. Eftir erfiða byrjun á síðasta tímabili fóru efasemdir að heyrast um hvort liðið væri farið að dala, en Villa svaraði þeim með því að vinna Evrópudeildina og tryggja sér um leið sæti í Meistaradeildinni á ný. Enn eitt tímabilið undir stjórn Spánverjans endaði því með árangri sem hefði þótt óhugsandi fyrir örfáum árum.

Það er erfitt að ofmeta áhrif Emery á félagið. Hann hefur umbreytt Aston Villa úr miðlungsliði í reglulegan þátttakanda í Evrópukeppnum og byggt upp menningu þar sem metnaðurinn nær langt út fyrir það eitt að tryggja sér Evrópusæti. Nú er spurningin ekki lengur hvort Villa geti keppt við bestu liðin, heldur hversu langt félagið getur raunverulega farið.

Félagið hefur nú tryggt sér Evrópusæti fjögur tímabil í röð og virðist sífellt færast nær ensku toppliðunum. Með Emery við stjórnvölinn leyfa stuðningsmenn sér að dreyma um fleiri titla, alvöru atlögu að ensku úrvalsdeildinni og jafnvel enn stærri afrek í Meistaradeild Evrópu.

Stjórinn: Unai Emery hefur þegar tryggt sér sess meðal merkustu stjóra í sögu Aston Villa. Spánverjinn hefur leitt félagið til sigurs í Evrópudeildinni og komið því aftur í Meistaradeildina sem er magnað afrek. Emery er þekktur fyrir nákvæman undirbúning, taktíska snilld og einstaka hæfileika til að fá það besta út úr leikmannahópnum. Undir hans stjórn hefur Aston Villa gjörbreyst sem félag til hins betra. Stuðningsmenn Villa líta nú þegar á Emery sem einn besta stjóra í sögu félagsins og vonast til að þetta sé aðeins upphafið að enn farsælli kafla.
Spáin fyrir enska - 7. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Villa hefur misst tvo lykilmenn en það hafa komið menn inn í staðinn sem fróðlegt verður að fylgjast með.

Komnir:
Johan Manzambi frá Freiburg - 51 milljón punda
Joao Gomes frá Wolves - 34 milljónir punda
Alejandro Garnacho frá Chelsea - Á láni

Farnir:
Morgan Rogers til Chelsea - 117 milljónir punda
Youri Tielemans til Manchester United - 35 milljónir punda
Donyell Malen til Roma - 21,6 milljónir punda
Enzo Barrenechea til Benfica - 12 milljónir punda
Lewis Dobbin til Southampton - 9 milljónir punda
Yeimar Mosquera til Vitória de Guimaraes - Óuppgefið kaupverð
Andrés García til Getafe - Á láni
Louie Barry til Sheffield Wednesday - Óuppgefið kaupverð

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 7. sæti

Mynd: EPA

Lykilmaður: Ezri Konsa
Hefur þróast í einn besta miðvörð ensku úrvalsdeildarinnar og er ómissandi hlekkur í liði Unai Emery. Enski landsliðsmaðurinn er með hraða, styrk og yfirvegun með boltann og hefur verið lykilmaður í því að Aston Villa hefur fest sig í sessi meðal sterkustu liða Englands. Á síðasta tímabili var hann einn stöðugasti leikmaður Villa, bæði í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppni.

Gaman að fylgjast með: Brian Madjo
Einn af þeim ungu leikmönnum sem stuðningsmenn Aston Villa binda hvað mestar vonir við. Þessi 17 ára gamli sóknarmaður kom til Aston Villa frá Metz í Frakklandi í janúar á þessu ári og borgaði enska úrvalsdeildarfélagið um 10 milljónir punda fyrir hann. Það segir mikið til um það hversu miklar væntingar eru gerðar til hans. Madjo er með skrokk sem er tilbúinn í ensku úrvalsdeildina og hefur leikið vel á undirbúningstímabilinu.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Í draumaheimi fyrir stuðningsmenn félagsins blandar Aston Villa sér í titilbaráttuna, en er það raunhæft? Tíminn verður að leiða það í ljós. Versta mögulega niðurstaðan er að Villa endi um miðja deild.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 7. sæti

Mynd: EPA

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 7. sæti

Mynd: Aston Villa

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.