Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 18. sæti

06.08.26

Spáin fyrir enska - 18. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við höldum áfram að spá í spilin fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni. Núna er komið að liðinu sem er spáð 18. sætinu en það er Coventry City sem fór með sigur af hólmi í Championship-deildinni á síðasta tímabili.
Coventry City er loksins komið aftur í ensku úrvalsdeildina eftir 25 ára bið. Undir stjórn Frank Lampard vann félagið Championship-deildina með nokkrum yfirburðum og svaraði þannig vonbrigðunum eftir að hafa mistekist að fara upp í gegnum umspilið árið áður.

Þrátt fyrir glæsilega endurkomu gera flestir sér grein fyrir því að verkefnið í úrvalsdeildinni verður allt annað. Hópurinn sem vann Championship þykir ekki nógu sterkur eða breiður til að standast kröfur deildarinnar og því þarf Coventry að styrkja sig skynsamlega á félagaskiptamarkaðnum. Markmiðið verður fyrst og fremst að halda sæti sínu, þó metnaðurinn innan félagsins nái mun lengra en það.

Saga Coventry síðustu 25 ára hefur einkennst af miklum sveiflum. Félagið hefur þurft að leika heimaleiki sína fjarri Coventry, fallið alla leið niður í League Two og síðan unnið sig hægt og rólega aftur upp. Stór hluti þessarar vegferðar hófst undir stjórn Mark Robins en Frank Lampard hefur nú tekið við keflinu og stendur frammi fyrir stærsta prófi félagsins í áratugi.

Stjórinn: Frank Lampard þarf vart að kynna fyrir fótboltaáhugamönnum. Sem leikmaður var hann einn besti miðjumaður sinnar kynslóðar, varð þrefaldur Englandsmeistari með Chelsea, vann Meistaradeildina og Evrópudeildina, skoraði yfir 200 mörk fyrir félagið og lék rúmlega 100 landsleiki fyrir England. Það þótti umdeilt þegar Mark Robins var rekinn frá Coventry, en Lampard vann stuðningsmenn fljótt á sitt band með því að stýra liðinu upp í ensku úrvalsdeildina á sínu fyrsta heila tímabili. Nú bíður hans risastór ákvörðun; að tryggja Coventry áframhaldandi sæti meðal bestu liða Englands.
Spáin fyrir enska - 18. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Það var gríðarlega mikilvægt fyrir Coventry að halda Carl Rushworth í markinu en hann var frábær fyrir liðið á láni í Championship á síðasta tímabili.

Komnir:
Carl Rushworth frá Brighton - 22,5 milljónir punda
Loum Tchaouna frá Burnley - 20 milljónir punda
Aurèle Amenda frá Eintracht Frankfurt - 15,4 milljónir punda
Frank Onyeka frá Brentford - Óuppgefið kaupverð

Farnir:
Norman Bassette til Westerlo - Á láni

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 18. sæti

Mynd: Coventry City

Lykilmaður: Carl Rushworth
Var einn mikilvægasti leikmaður Coventry í Championship á síðasta tímabili. Markvörðurinn spilaði alla 46 deildarleikina, hélt 17 sinnum hreinu og var valinn besti markvörður deildarinnar eftir að hafa átt stóran þátt í því að Coventry vann Championship. Nú hefur félagið tryggt sér þjónustu hans til frambúðar frá Brighton með félagsmeti, sem undirstrikar hversu mikils hann er metinn innan félagsins. Hann þarf að eiga mjög gott tímabil.

Gaman að fylgjast með: Jack Rudoni
Gæti orðið einn af þeim leikmönnum sem springur út í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Sóknarsinnaði miðjumaðurinn er 25 ára gamall og hefur átt stóran þátt í velgengni Coventry. Rudoni hefur leikstíl sem minnir um margt á Frank Lampard á sínum bestu árum. Það verður líka mjög spennandi að fylgjast með Caleb Yirenkyi sem Coventry er að kaupa frá Nordsjælland á mikinn pening en það á enn eftir að staðfesta þau félagaskipti.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er sú að Coventry sleppur við fall og nær svo að byggja ofan á það á næstu árum, en versta mögulega niðurstaðan er botnsæti deildarinnar.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 18. sæti

Mynd: Coventry

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. ?
15. ?
16. ?
17. ?
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.