Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 16. september 2019 12:25
Elvar Geir Magnússon
HM félagsliða: Ljóst hvaða lið geta mætt Liverpool
Frá Katar.
Frá Katar.
Mynd: Getty Images
Í dag var dregið í HM félagsliða en drátturinn fór fram í Zurich. Liverpool tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn síðan 2005 en það ár endaði liðið í öðru sæti.

HM félagsliða fer fram í Katar í desember en landið er að búa sig undir að halda HM landsliða 2022.

Al Sadd frá Katar mun mæta Hienghene Sport frá Nýju-Kaledóníu en sigurliðið þar leikur svo gegn CF Monterrey frá Mexíkó um að mæta Liverpool í undanúrslitum.

Líklegast er að Liverpool muni leika gegn mexíkóska liðinu.

Evrópumeistarar Liverpool munu leika í undanúrslitum 18. desember en úrslitaleikurinn verður 21. desember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner