Fotbolti.net
16.09.19 - 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Túfa gefst ekki upp: Er þannig gerður og strákarnir líka

Auglýsing
Túfa gefst ekki upp: Er þannig gerður og strákarnir líka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er vonsvikinn að þessi leikur hafi endaði með jafntefli," sagði Túfa, þjálfari Grindavíkur, eftir 1-1 jafntefli gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni í dag.

„Mér fannst spilamennska míns liðs mjög góð, sérstaklega í seinni hálfleik. Við fengum nægilega mikið af færum til að vinna leikinn. Í okkar stöðu var nauðsynlegt að vinna leikinn. Miðað við hvernig staðan hjá okkur er, að mitt lið komi hér upp á Skaga og spili svona leik, ég er stoltur af strákunum."
Eftir jafnteflið er Grindavík sex stigum frá öruggu sæti þegar liðið á tvo leiki eftir. Það þarf allt að ganga upp til þess að liðið haldi sér upp í Pepsi Max-deildinni.

„Þótt vonin sé lítil og veik, þá ætlum við ekkert að gefast upp, ég er þannig gerður og strákarnir líka."

„Við höfum verið inn í flestum þessara leikja í sumar. Þetta er tíunda jafnteflið okkar og ef ég horfi á þetta sanngjarnt, þá fannst mér helmingur þessara jafntefla getað endað okkar megin."

Viðtalið er hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.