fös 16. september 2022 10:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dean Martin áfram á Selfossi (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dean Martin, þjálfari Selfoss, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

„Ég er hæstánægður með það að vera búinn að skrifa undir nýjan samning við Selfoss. Mér finnst liðið og félagið vera á réttri leið og við höfum trú á þeirri vegferð sem við erum á,” sagði Dean við undirskriftina.

Dean tók við Selfyssingum um mitt tímabil 2018 og hefur verið á Selfossi allar götur síðan þá.

„Markmiðin eru að bæta umhverfið og halda áfram að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri. Aðstaðan á Selfossi er til fyrirmyndar og við ætlum að nýta okkur hana til þess að gera liðið betra.”

Dean náði ekki að halda Selfossi uppi í Lengjudeildinni tímabilið 2018 en kom liðinu upp úr 2. deild tímabilið 2020. Í fyrra endaði liðið í áttunda sæti og í ár getur liðið hæst endað í 7. sæti.

Selfoss leikur sinn síðasta leik þetta sumarið á morgun þegar KV kemur í heimsókn á JÁVERK-völlinn. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og býður Bílasala Selfoss frítt á leikinn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner