Fotbolti.net
16.09.26 - 18:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carrick: Erum búnir að jafna okkur eftir helgina

Carrick: Erum búnir að jafna okkur eftir helgina
Canon

Mynd: EPA

Man Utd mætir Brighton í enska deildabikarnum í kvöld. Liðið mætir í leikinn eftir vonbrigðatap gegn Man City í grannaslag um helgina.

Erling Haaland skoraði eina mark leiksins en ensku dómarasamtökin viðurkenndu að markið hefði ekki átt að standa þar sem Enzo Fernandez var rangstæður.
„Við erum búnir að jafna okkur. Þann dag, þegar þetta gerist og eftir leikinn verðum við að díla við þetta. Þetta er augljóst, það er búið að segja nóg um þetta. Við höldum áfram og einbeitum okkur að kvöldinu í kvöld," sagði Michael Carrick.

„Við viljum byrja að vinna leiki eins fljótt og hægt er. Við höfum tækifæri í dag og á sunnudaginn. Shea Lacey kom aftur eftir sumarið og spilaði vel. Við höfum alltaf haft miklar vonir um Shea. Maður vill aldrei missa sig, við höfum tekið góð skref, vaxið og hann æft með aðalliðinu aðeins meira."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.