Einn leikur fer fram í íslenska boltanum í dag en kvennalið Breiðabliks mætir Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Paris Saint-Germain er annað stærsta félagið í Frakklandi á eftir Lyon en leikurinn fer fram á Kópavogsvelli klukkan 18:30 í kvöld.
Þetta er í annað sinn sem íslenskt lið kemst í 16-liða úrslitin eftir að fyrirkomulaginu var breytt en Stjarnan náði þeim áfanga árið 2017.
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í Wolfsburg mæta þá Twente frá Hollandi.
Leikur dagsins:
18:30 Breiðablik - Paris Saint-Germain (Kópavogsvöllur)
16:00 Wolfsburg - Twente
Athugasemdir