Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg unnu 6-0 sigur á hollenska liðinu Twente í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Sara Björk var líkt og vanalega í byrjunarliði Wolfsburg en hún fór af velli á 75. mínútu.
Zsanett Jakabfi og Dominique Bloodworth skoruðu báðar tvö mörk en þá komust þær Pernille Harder og Fridolina Rolfoe einnig á blað.
Fyrri leikurinn fór fram á heimavelli Wolfsburg en síðari leikurinn fer fram 30. október næstkomandi.
Sæti Wolfsburg er því svo gott sem tryggt. Bayern München mun að öllum líkindum fylgja Wolfsburg í 8-liða úrslitin en liðið vann 5-0 sigur á Kazygurt. Á sama tá vann Glasgow City 2-0 sigur á Bröndby.
Athugasemdir