Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 16. október 2021 15:41
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Brentford og Chelsea: Fyrsti deildarleikur Sarr
Malang Sarr spilar sinn fyrsta deildarleik fyrir Chelsea
Malang Sarr spilar sinn fyrsta deildarleik fyrir Chelsea
Mynd: Getty Images
Nýliðar Brentford taka á móti Evrópumeisturum Chelsea á samfélagsvellinum klukkan 16:30 en byrjunarlið beggja liða eru klár.

Edouard Mendy er í rammanum hjá Chelsea og þá er Trevor Chalobah í vörninni ásamt Malang Sarr og Andreas Christensen. Sarr er að spila fyrsta deildarleik sinn fyrir Chelsea.

Ruben Loftus-Cheek er einnig í liðinu og þá er Romelu Lukaku upp á topp.

Hér fyrir neðan má sjá liðin.

Brentford: Raya; Zanka, Jansson, Pinnock; Canós, Jensen, Nørgaard, Onyeka, Henry; Mbeumo, Toney.

Chelsea: Mendy; Chalobah, Christensen, Sarr; Azpilicueta, Kanté, Kovacic, Chilwell; Werner, Loftus-Cheek; Lukaku.
Athugasemdir
banner
banner