Joe Gomez og Jordan Henderson verða ekki með enska landsliðinu sem mætir Kósóvó í lokaleik sínum í undankeppni fyrir EM2020. Leikurinn fer fram á morgun.
Henderson er að eiga við sýkingu, líkt og gegn Svartfjallalandi, sem hefur ekki horfið af fullu úr líkama miðjumannsins.
Henderson er að eiga við sýkingu, líkt og gegn Svartfjallalandi, sem hefur ekki horfið af fullu úr líkama miðjumannsins.
Gomez meiddist á æfingu þegar hann lenti í samstuði við Kieran Trippier í gær. Vonast var til að hann myndi ná leiknum en hann er sagður finna fyrir það miklu sársauka að best væri að hvíla alveg gegn Kósóvó.
Leikmennirnir eru komnir til Liverpool. Enska liðið lagði Svartfjallaland, 7-0, á fimmtudag og er komið á EM.
Athugasemdir