Fotbolti.net
16.11.26 - 09:23
Elvar Geir Magnússon

Allt logaði í slagsmálum í „vináttuleik“

Allt logaði í slagsmálum í „vináttuleik“
Canon

Mynd: Skjáskot

Sex rauð spjöld fóru á loft í viðureign New York Red Bulls gegn mexíkóska liðinu Club América. Um var að ræða vináttuleik sem stóð ekki undir nafni.

Að setja þennan æfingaleik á þótti mörgum undarlegt. Red Bulls hafa þegar verið slegnir úr útsláttarkeppninni í MLS og leikmenn þurftu að fresta fríum til að spila þennan leik.

Pirringurinn meðal leikmanna var augljós og allt sauð upp úr þegar fimm mínútur voru eftir. Red Bulls var 1-0 yfir og Mijahir Jiménez rak boltann í átt að hornfánanum hægra megin en varð fyrir harkalegri tæklingu. Jiménez reiddist og varð það kveikjan að miklum látum: hrindingum, og hnefahöggum. Áhorfendur köstuðu drykkjarílátum inn á völlinn.

Sex rauð spjöld fóru á loft og leikurinn kláraðist átta gegn átta. Dómarinn bætti engum uppbótartíma við, sem var líklega skynsamleg ákvörðun.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.