13.11.26 - 22:55
Elvar Geir Magnússon
Arnar Gunnlaugs: Veit alveg hvað mínir landar munu segja
Auglýsing

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari mætti í viðtal við Fótbolta.net eftir 5-0 útisigurinn gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
„Við fengum okkar sterkustu leikmenn í toppformi og þeir sýndu bara úr hverju þeir voru gerðir. Við vorum on it frá fyrstu mínútum" sagði Arnar.
„Þetta er náttúrulega 5-0 á útivelli en ég veit alveg hvað mínir landar munu segja, þeir tala um hvað Búlgarar eru lélegir og svoleiðis. Ég vil bara minna fólk á að að Spánn vann þá 3-0 hérna í fyrra. Þannig að við reynum aðeins að hrósa okkar strákum fyrir, fyrir frábæran leik og og mjög fagmannlega frammistöðu."
Orri Steinn Óskarsson fyrirliði var tekinn af velli í hálfleik.
„Orri er aðeins stífur aftan í læri þegar hann kemur inn í verkefnið, þannig að við vorum alltaf meðvitaðir um gefa honum hvíld. Við vorum bara búnir með tvo skiptingaglugga snemma þannig að Orri þurfti að koma út í hálfleik til að fórna ekki glugga."
Hvernig er staðan á Kristal og Stefáni sem fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik?
„Ekki góð. Vonandi er þetta væg tognun hjá Stefáni en hann verður ekki með í næsta leik. Kristall fær eitthvað slink á hnéð og á eftir að fara frekar í skoðun."
Þarf að kalla mann inn?
„Já, ég held við þurfum að skoða það alvarlega. Við vorum nógu fámennir fyrir í vörninni áður en að glugginn byrjaði og erum búnir að nánast vera það alla þessa keppni,"
Er ákveðið hver það verður?
„Nei, við þurfum að skoða það bara saman í rólegheitum um kvöld. En ég á von á því frekar að við gerum eitthvað í þessu."
Nokkur orð um Andra Lucas sem skoraði þrennu.
„Ég vil líka vekja athygli á gríðarlega sterkum alhliða leik hans. Hann er frábær varnarframherji og þeir báðir (hann og Orri) eru búnir að læra svo mikið hvað varðar varnarleik. Ég myndi segja að mörkin séu bara bónus á þeirra leik. Þeirra þróun síðustu árin er bara búin að vera stórkostleg og þeir eru mjög ungir þannig að þetta er bara veisla fyrir okkur Íslendinga að hafa þá tvo."
Eistar unnu í kvöld þannig að Ísland þarf að vinna á mánudaginn til þess að tryggja toppsætið. Hvernig sérðu það vera?
„Mér finnst Eistar bara ótrúlega seigir í þessari keppni. Bara ótrúlega seigir. Þetta er í okkar höndum og vonandi fáum við góðan stuðning á mánudaginn."
Leikurinn gegn Lúxemborg á mánudag, það verður lokaleikur Arons Einars. Mun hann taka þátt í leiknum?
,Vonandi, ég hef alltaf sagt það að vonandi nær hann að gefa okkur mínútur og loka glæstum landsliðsferli en ég er ekki að lofa þér neinu núna. Hann og Gylfi komu gríðarlega sterkir inn í þennan leik í kvöld."