fös 16. desember 2022 13:16
Elvar Geir Magnússon
Janúarhópur Íslands: Aron og Nökkvi valdir
Aron Bjarnason.
Aron Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland leikur tvo vináttulandsleiki á Algarve í Portúgal í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Eistlandi 8. janúar á Estadio Nora og sá seinni á Estadio Algarve 12. janúar gegn Svíþjóð.

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið leikmannahóp fyrir verkefnið, sem er utan FIFA-glugga eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um, og því kemur bróðurpartur leikmanna í hópnum frá félagsliðum í Bestu deildinni, Svíþjóð og Noregi.

Arnar Þór: "Janúarverkefni hafa fest sig vel í sessi sem hluti af dagatali A landsliðs karla og hafa nýst vel í gegnum tíðina. Þetta er auðvitað ekki FIFA-gluggi þannig að félögum ber ekki skylda til að sleppa leikmönnum í verkefnið. Það er lítið við því að gera og við berum bara virðingu fyrir því. Hópurinn sem við erum með núna er góð blanda leikmanna úr ýmsum áttum og við erum mjög spenntir fyrir þessu verkefni. Við tilkynnum 22 leikmenn núna, það er líklegt að sá 23. bætist við, en það skýrist síðar."

Markverðir

Frederik Schram – 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson – 3 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson – 2 leikir

Aðrir leikmenn

Andri Lucas Guðjohnsen – 12 leikir, 2 mörk
Arnór Ingvi Traustason – 44 leikir, 5 mörk
Arnór Sigurðsson – 25 leikir, 2 mörk
Aron Bjarnason – 0 leikir, 0 mörk
Aron Sigurðarson – 6 leikir, 2 mörk
Dagur Dan Þórhallsson – 2 leikir, 0 mörk
Damir Muminovic – 4 leikir, 0 mörk
Danijel Dejan Djuric – 1 leikur, 0 mörk
Davið Kristján Ólafsson – 11 leikir, 0 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson – 31 leikur, 1 mark
Höskuldur Gunnlaugsson – 7 leikir, 0 mörk
Ísak Snær Þorvaldsson – 2 leikir, 0 mörk
Júlíus Magnússon – 3 leikir, 0 mörk
Kristall Máni Ingason – 2 leikir, 0 mörk
Nökkvi Þeyr Þórisson - 0 leikir, 0 mörk
Róbert Orri Þorkelsson – 2 leikir, 0 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen – 17 leikir, 1 mark
Valgeir Lunddal Friðriksson – 4 leikir, 0 mörk
Viktor Örlygur Andrason – 3 leikir, 0 mörk
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner