Fotbolti.net
17.02.20 - 18:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þrír nýir í stjórn Íslensks Toppfótbolta

Þrír nýir í stjórn Íslensks Toppfótbolta
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Á fundi hjá Íslenskum Toppfótbolta í dag var kosið inn nýja stjórnarmenn. Haraldur Haraldsson var sjálfkörinn formaður og gegnir því formennsku áfram.
Þeir Sigurður Kristinn Pálsson, Sveinbjörn Másson og Victor Ingi Olsen verða áfram í stjórn.

Þrír nýir bættust við stjórnina en það eru þeir Sævar Pétursson (KA), Jónas Kristinsson (KR) og Helgi Aðalsteinsson (Breiðablik) sem voru kosnir inn í stjórnina.

Jón Rúnar Halldórsson, Valtýr Björn Valtýsson og Baldur Már Bragason sóttust einnig eftir sæti í stjórn en fengu ekki nægilega mörg atkvæði í atkvæðagreiðslu.
Sævar Pétursson fékk flest atkvæði í atkvæðagreiðslunni.

Sævar Pétursson fékk flest atkvæði í atkvæðagreiðslunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.