Heldur heimshornaflakk Jesse Lingard áfram?

Lingard spilaði síðast með Seoul í Suður-Kóreu.

Mynd: EPA

Jesse Lingard er núna í viðræðum við brasilíska félagið Remo. Fjölmiðlar þar í landi greina frá því.
Lingard lék í tæplega tvö ár í Suður-Kóreu en yfirgaf FC Seoul í desember síðastliðnum.

TENGT EFNI
West Ham sagði nei við Lingard
Það hafa verið ýmsar sögusagnir um hvert næsta félag þessa 33 ára fyrrum leikmanns Manchester United, West Ham og Nottingham Forest gæti verið.
Hann var á dögunum orðaður við endurkomu til West Ham en Lundúnafélagið ákvað að taka Adama Traore frá Fulham frekar.
Samkvæmt Globo í Brasilíu er Lingard núna í viðræðum við félag sem heitir Remo og leikur í efstu deild þar í landi. Viðræðurnar ganga vel og gæti verið stutt í samkomulag.