Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 16:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Ekki leggjast það lágt að efast um Mourinho
Jose Mourinho, stjóri Benfica.
Jose Mourinho, stjóri Benfica.
Mynd: EPA
Gylfi Tryggvason.
Gylfi Tryggvason.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Óskar Smári Haraldsson.
Óskar Smári Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: EPA
Anton Freyr Jónsson að störfum.
Anton Freyr Jónsson að störfum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Meistaradeildin byrjar aftur að rúlla í kvöld eftir stutta pásu. Umspilið fyrir 16-liða úrslitin hefst þá með fjórum leikjum.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:

Gylfi Tryggvason
Galatasary 1 - 1 Juventus (17:45)
Juventus þurfa að laga varnarleikinn hjá sér og mæta með það að aðalmarkmiði í þennan leik. Andrúmsloftið á Rams Park reynist þeim ofviða og Galatasary tekur forystuna í fyrri hálfleik. Það sem stuðningsmenn Galatasary gleyma er að Yildiz nærist á þessu andrúmslofti. Hann leikur á als oddi í þessum leik og græjar jöfnunarmark Juventus manna sem fara sáttir á koddann.

Benfica 2 - 1 Real Madrid (20:00)
Schjelderup hefur tímabundið tekið við keflinu af Erling sem besti norski fótboltamaðurinn. Ekki bara skoraði hann tvö mörk í síðasta leik gegn Real Madrid heldur mætir hann illa peppaður eftir þá sem hafa hingað til verið einhverjir rosalegustu Vetrarólympíuleikar í manna minnum. Takk Gunni Birgis.

En þetta er klárlega leikurinn sem fólk hefur beðið eftir. Ég ætla ekki að leggjast það lágt að efast um José Mourinho. Þegar maður er kominn á fertugsaldur er eins gott að maður hafi lært eitthvað af sögunni og okkar ábyrgð er að miðla okkar þekkingu til yngri kynslóðar. Ekki. Efast. Um. José. Mourinho.

2-1. Sudakov, Schjelderup, Mbappe.

Dortmund 2 - 1 Atalanta (20:00)
Tvö heit lið að mætast. Dortmund verið flottir á heimavelli. Atalanta mæta á góðu skriði í þennan leik og vita ekki alveg hvort þeir eigi að hamra járnið meðan það er heitt eða vera klókir og hafa leikinn lokaðan. Ítalinn velur að sjálfsögðu klókindin en Dortmund klárar sigurinn í lokin. Spurningin er hvort sigurinn muni reyndar nógu stór.

Mónakó 1 - 2 PSG (20:00)
Fótboltinn vinnur þennan leik. Kvaratskhelia mun eiga einhverja snarruglaða úrslitakeppni í Meistaradeildinni og hann setur tóninn í þessum leik, skorar eitthvað alvöru þvælumark. PSG þægilega áfram úr þessu einvígi.

Óskar Smári Haraldsson
Galatasaray 0 - 2 Juventus
Þessi er alvöru bananahýði. Það er virkilega erfitt að fara til Tyrklands og ná í úrslit. Juventus eru samt ekkert að fíflast og sækja öruggan 0-2 sigur. Kenan Yildiz kemur heim og setur tvö.

Benfica 0 - 0 Real Madrid
þetta er geggjaður leikur. Er ekki hægt að segja að þetta sé hinn fullkomni leikur fyrir 'the special one' að setja upp alvöru plan og keyra upp geðveikina í Portúgalanum? Spái 0-0, Mourinho masterclass í varnarleik þar sem XG verður ca 0,20 total í leiknum. Fallega við það er að þetta verður 'thing of beauty' hjá Móra.

Dortmund 3 - 0 Atalanta
3-0 Dortmund og er í svo litlum vafa með það. Atlanta misstu Lookman og það er skarð sem þeir fylla ekki svo auðveldlega. Dortmund heima í Meistaradeildinni er alvöru veisla á Signal Iduna Park. Það verður ein þrenna í umferðinni og hún fer til Serhou Guirassy

Mónakó 0 - 3 PSG
Veit ekki hvað það er, en mér finnst þetta svo óendanlega óspennandi viðureign. Dembele er í PSG og hann leggur upp og skorar. PSG siglir þessum þægilega 0-3 heim og fara í þægilega stöðu fyrir seinni leikinn.

Fótbolti.net - Anton Freyr Jónsson
Galatasaray 0 - 0 Juventus
Þetta verður leiðinlegur leikur hugsa ég. 0-0 og Juve fer með fína stöðu heim til Ítalíu fyri seinni leikinn

Benfica 1 - 3 Real Madrid
Litlu senurnar þegar þessi lið mættuat í deildarkeppninni. VÁ. Real mæta með blóðið á tönnunum til Portúgals og vinna 1-3. Ef Trent byrjar þá skorar hann og leggur upp.

Dortmund 3 - 2 Atalanta
Þetta verður einhver þvælu leikur og endar 3-2 fyrir Dortmund. Julian Brandt með winner á 93

Mónakó 1 - 3 PSG
PSG mæta gíraðir í þetta verkefni effir tap í deildinni síðustu helgi og vinn þetta 1-3. Dembele með tvö og eitt assist

Staðan í heildarkeppninni:
Gylfi Tryggva - 0
Óskar Smári - 0
Fótbolti.net - 0
Athugasemdir
banner
banner
banner