Fotbolti.net
17.02.26 - 23:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mourinho: Ég elska hann en af hverju fagnaðirðu svona?

Mourinho ræðir við Vinicius.

Mourinho ræðir við Vinicius.

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho segir Benfica ekki vera rasistaklúbb. Eins og vel hefur verið fjallað um þá var allt brjálað í leik Benfica gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld eftir að Vinicius skoraði sigurmark Madrídarstórveldisins.
Sjáðu atvikið sem allir eru að tala um
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið sem allir eru að tala um

Vinicius steig dans við hornfánann og stuðningsmenn Benfica voru reiðir. Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, lét svo ummæli falla sem urðu til þess að Vinicius fór beint til dómarans og neitaði að spila áfram. Kylian Mbappe, stórstjarna Real Madrid, segir Prestianni hafa kallað Vinicius „apa" að minnsta kosti fimm sinnum.

Mourinho, sem er stjóri Benfica, gagnrýndi aðallega eftir leik hvernig Vinicius fagnaði markinu - dansinn sem hann tók við hornfánann.

„Ég sagði við Vini 'þú skoraðir ótrúlegt mark, af hverju fagnaðirðu svona?' Ég elska hann en ef þú skorar svona mark þá ættir þú að fagna með liðsfélögum þínum," sagði Mourinho.

Vinicius hefur oftar en einu sinni orðið fyrir kynþáttafordómum í spænska boltanum.

„Þegar svona gerist á svo mörgum leikvöngum, alltaf það sama, þá er eitthvað að," sagði Mourinho og bætti við:

„Ég sagði Vini að hann hefði átt að fagna öðruvísi. Mesta goðsögn í sögu Benfica er Eusebio, svartur leikmaður. Benfica er ekki rasistaklúbbur."
Vinicius fagnar marki sínu.

Vinicius fagnar marki sínu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.