Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 14:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Saka framlengir (Staðfest) - Orðinn launahæsti leikmaður Arsenal
Mynd: EPA
Bukayo Saka hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Arsenal. Þetta fullyrðir BBC og samkvæmt þeirra heimildum er hann orðinn launahæsti leikmaður félagsins og fær meira en 300 þúsund pund í vikulaun. Viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í talsverðan tíma.

Saka er fæddur í Londong og uppalinn hjá Watford og Arsenal. Hann er 24 ára vængmaður sem spilaði sína fyrstu leiki með aðalliði Arsenal veturinn 2018-19.

Hann hefur skorað 77 mörk í 296 leikjum með Arsenal og 14 mörk í 48 landsleikjum.


Arsenal á möguleika á fernunni í vetur; liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar, úrslitaleik deildabikarsins og 16-liða úrslit enska bikarsins.

Fyrri samningur Saka við Arsenal hefði runnið út sumarið 2027. Hann hefur skorað sjö mörk í 33 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner