Fotbolti.net
17.02.26 - 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vinicius skoraði og neitaði svo að spila

Vinicius ræðir við dómarann.

Vinicius ræðir við dómarann.

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid er komið 0-1 yfir gegn Benfica í Portúgal. Vinicius Junior skoraði markið með góðu skoti.

En eftir markið fór allt í háaloft og leikurinn var stöðvaður.
Vinicius varð brjálaður en svo virðist sem Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, hafi sagt eitthvað við hann. Prestianni hélt treyju sinni fyrir munninum þegar hann sagði eitthvað við Vinicius.

Á X-reikningnum Touchline sem er með 1,5 milljónir fylgjenda er sagt að Vinicius hafi tjáð dómaranum það að hann hafi verið kallaður „api" sem má túlka sem kynþáttafordóma.

Leikurinn var stöðvaður í dágóða stund og Vinicius neitaði að spila. Hann settist á varamannabekkinn og ræddi við Jose Mourinho, stjóra Benfica.

Leikurinn er núna kominn aftur í gang en hann var stopp í einhverjar tíu mínútur. Prestianni er enn inn á vellinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.