Íslenskt dómaratríó verður að störfum á leik Cliftonville og Dungannon í norður írsku úrvalsdeildinni um helgina.
Helgi Mikael Jónasson verður aðaldómari leiksins og þá verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Kristján Már Ólafs honum til aðstoðar.
Leikurinn fer fram á Solitude-leikvanginum í Cliftonville á morgun klukkan 15:00 á morgun.
Þetta er liður í dómaraskiptum milli landanna en í sumar munu norður írskir dómararar koma hingað til lands og dæma leik í deildinni.
Athugasemdir