
Bandaríski markvörðurinn Amber Michel hefur leikið í marki TIndastóls frá 2020 og gert það ótrúlega vel, en hún verður ekki með liðinu í sumar.
Jón Stefán Jónsson, fyrrum þjálfari Tindastóls, sagði frá því í Heimavellinum fyrr í vikunni að Amber, sem er fædd árið 1997, væri að öllum líkindum hætt í fótbolta þar sem hún er búin að fá góða vinnu í heimalandi sínu.
Jón Stefán Jónsson, fyrrum þjálfari Tindastóls, sagði frá því í Heimavellinum fyrr í vikunni að Amber, sem er fædd árið 1997, væri að öllum líkindum hætt í fótbolta þar sem hún er búin að fá góða vinnu í heimalandi sínu.
„Ég held að það sé mikil blóðtaka fyrir liðið að missa Amber úr markinu," sagði Jón Stefán.
„Hún fékk það góða vinnu út í Bandaríkjunum að ég held að hún sé hætt í fótbolta. Það er synd því hún er mjög góður leikmaður."
Fyrr í vetur samdi Monica Wilhelm við Tindastól en þar er á ferðinni annar bandarískur markvörður sem lék með háskólanum í Iowa í fimm ár. Hún er 23 ára gömul.
Var meidd nánast allt sumarið
Tindastóll er í annað sinn að fara að taka þátt í Bestu deild kvenna í sumar. Aðalstjarna liðsins er áfram sóknarmaðurinn Murielle Tiernan sem hefur raðað inn mörkum í neðri deildum. Hún skoraði hins vegar aðeins tvö mörk í 17 leikjum síðast þegar hún lék í efstu deild. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Murielle.
„Murielle var meidd nánast allt sumarið þegar þær voru í efstu deild síðast. Ég vona að hún sé heil núna því fólk á skilið að sjá hana í réttri mynd," sagði Jón Stefán og bætti við:
„Það er frábær leikmaður og frábær manneskja."
Hægt er að hlusta á alla umræðuna hér að neðan en það verður ekki auðvelt að fara á Sauðárkrók í sumar og sækja þrjú stig.
Athugasemdir