Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   fös 17. mars 2023 22:35
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Góð endurkoma hjá Atalanta
Rasms Hojlund skoraði sigurmark Atalanta
Rasms Hojlund skoraði sigurmark Atalanta
Mynd: EPA
Atalanta vann fyrsta leik sinn í rúman mánuð er það vann Empoli, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Liðið hafði ekki unnið í síðustu fjórum leikjum sínum og frammistaða liðsins að valda miklum áhyggjum.

Heimamenn lentu undir þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum er Tyronne Ebuehi skoraði fyrir Empoli.

Marten de Roon jafnaði með skalla á 58. mínútu áður en danski framherjinn Rasmus Hojlund tryggði Atalanta sigurinn þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum.

Atalanta er í 6. sæti deildarinnar og á enn í baráttunni um Meistaradeildar sætið en liðið er með 45 stig, þremur stigum á eftir Milan sem er í 4. sætinu.

Spezia er áfram í basli í neðri hlutanum eftir að liðið tapaði fyrir Sassuolo, 1-0. Domenico Berardi gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Spezia er í 17. sæti með 24 stig, fimm stigum frá fallsæti en Sassuolo siglir lygnan sjó um miðja deild með 36 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Atalanta 2 - 1 Empoli
0-1 Tyronne Ebuehi ('44 )
1-1 Marten de Roon ('58 )
2-1 Rasmus Hojlund ('86 )

Sassuolo 1 - 0 Spezia
1-0 Domenico Berardi ('71 , víti)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 36 23 9 4 57 27 +30 78
2 Inter 36 23 8 5 75 33 +42 77
3 Atalanta 35 20 8 7 71 31 +40 68
4 Juventus 36 16 16 4 53 33 +20 64
5 Lazio 36 18 10 8 59 46 +13 64
6 Roma 35 18 9 8 50 32 +18 63
7 Bologna 36 16 14 6 54 41 +13 62
8 Milan 36 17 9 10 58 40 +18 60
9 Fiorentina 35 17 8 10 53 35 +18 59
10 Como 36 13 9 14 48 49 -1 48
11 Torino 36 10 14 12 39 42 -3 44
12 Udinese 36 12 8 16 39 51 -12 44
13 Genoa 36 9 13 14 32 45 -13 40
14 Cagliari 36 8 9 19 37 54 -17 33
15 Verona 36 9 6 21 31 64 -33 33
16 Parma 36 6 14 16 41 56 -15 32
17 Empoli 36 5 13 18 29 56 -27 28
18 Lecce 36 6 10 20 25 58 -33 28
19 Venezia 35 4 14 17 28 49 -21 26
20 Monza 36 3 9 24 27 64 -37 18
Athugasemdir
banner