Nígeríski framherjinn Emmanuel Dennis skoraði glæsilegt mark er hann kom Nottingham Forest í 1-0 gegn Newcastle United á 26. mínútu leiksins. Jöfnunarmark Alexander Isak undir lok fyrri hálfleiksins var ekki síðra en staðan er 1-1.
Sven Botman, varnarmaður Newcastle, kom með arfaslaka sendingu til baka á Nick Pope og náði Dennis að komast í boltann. Hann fór með boltann til hliðar áður en hann vippaði boltanum í vinstra hornið.
Glæsileg afgreiðsla en Newcastle svaraði áður en hálfleikurinn var úti og var það sænski framherjinn Alexander Isak sem gerði markið og var það einnig í flottari kantinum.
Hann fékk fyrirgjöf frá hægri og náði einhvern vegin að teygja út löppina og stýra boltanum í stöng og inn en bæði mörkin má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Dennis
Sjáðu jöfnunarmark Newcastle
Athugasemdir