Sigurbergur Áki Jörundsson, leikmaður Fylkis, varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik með liðinu í síðustu viku. Hann staðfestir tíðindin við Fótbolta.net.
Þetta er í þriðja sinn á nokkuð stuttum tíma sem Sigurbergur slítur krossband. Hann sleit fyrst krossband 2020 og aftur í lok tímabils 2024. Alltaf hefur það verið sama hnéð - á hægri fæti.
Þetta er í þriðja sinn á nokkuð stuttum tíma sem Sigurbergur slítur krossband. Hann sleit fyrst krossband 2020 og aftur í lok tímabils 2024. Alltaf hefur það verið sama hnéð - á hægri fæti.
Hann fór meiddur af velli þegar Fylkir mætti ÍBV í Lengjubikarnum í síðustu viku. Hann festist í gervigrasinu í Árbæ og var strax óttast um að meiðslin væru alvarleg.
Sigurbergur er fyrrum unglingalandsliðsmaður sem uppalinn er hjá Stjörnunni og gekk svo í raðir Fylkis vorið 2024. Hann mun þurfa að fara í aðgerð vegna meiðslanna og verður lengi frá.
Athugasemdir

