Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, var afar glaður í kvöld eftir 1-0 sigur hans manna á Manchester City í enska bikarnum.
Chelsea er komið í úrslit bikarsins eftir 1-0 sigur en Hakim Ziyech gerði eina mark leiksins.
Chelsea náði að verjast ansi vel gegn sterku liði City og var Tuchel stoltur af frammistöðunni.
„Þetta var virkilega sterk frammistaða og ég er stoltur af henni," sagði Tuchel við BBC eftir leikinn.
„Við vorum ekki heppnir að halda hreinu, við unnum fyrir því. Strákarnir sjá um hvorn annan ef einhver tapar einvígi. Við vildum sýna hugrekki í dag."
„Tilfinningin er frábær því við vorum að spila við besta lið Evrópu í dag og við lokuðum á þá í 90 mínútur. Það er svo erfitt gegn City. Frammistaðan var í hæsta gæðaflokki."
Athugasemdir