Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fös 17. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirpartý á Ölveri fyrir leikinn gegn Englandi
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna og Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska ladnsliðsins, verða með fyrirpartý á laugardag fyrir leik Íslands og Englands í undankeppni HM.

Partýið verður á Ölveri og húsið opnar kl. 13:00 og er tekið fram að það verði frír bjór fyrir þá sem mæta snemma.

Leikurinn hefst svo klukkan 16:30 á Laugardalsvelli.

Ólafur Kristjánsson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, mætir og fer aðeins yfir stöðuna með okkur fyrir leik og Tólfan rífur upp stemninguna eins og þau kunna best.

Mætið með okkur í alvöru upphitun og svo fjölmennum við á völlinn að hvetja stelpurnar!


Viðburðurinn á Facebook

Slapp