PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 17. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland um helgina - Sú Besta, landsleikur gegn Evrópumeisturunum og bikar
Hermann Hreiðarsson mætir sínum gömlu félögum
Hermann Hreiðarsson mætir sínum gömlu félögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland spilar við Evrópumeistara Englendinga
Ísland spilar við Evrópumeistara Englendinga
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Stjarnan og FH mætast í erkifjendaslag
Stjarnan og FH mætast í erkifjendaslag
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Önnur umferð Bestu deildar karla er öll spiluð um helgina, nánar tiltekið annað kvöld, og þá er spilað í 1. umferð í Mjólkurbikar kvenna.

Besta deildin byrjaði með pomp og prakt síðustu helgi þar sem við fengum marga spennuleiki.

Önnur umferðin hefst með leik Vals og ÍBV klukkan 16:30 á Hlíðarenda, en þar mun Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, mæta uppeldisfélaginu. Valur tapaði fyrir nýliðum Þórs í fyrstu umferðinni á meðan Eyjamenn gerðu jafntefli við FH.

KR-ingar taka á móti Þór í Vesturbænum og þá spila Íslandsmeistarar Vikings við KA á Greifavellinum á Akureyri. Fram átti frábæra endurkomu gegn ÍA í síðustu umferð en núna mætir liðið nýliðum Keflavíkur á meðan Skagamenn heimsækja Breiðablik á Kópavogsvöll.

Erkifjendur Stjörnunnar og FH mætast síðan á Samsung-vellinum klukkan 20:00 í kvöld.

Spilað er í undanúrslitum B- og C-deildar Lengjubikarsins, fyrsta umferðin í Mjólkurbikar kvenna fer af stað og þá mun íslenska kvennalandsliðið mæta Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM á Laugardalsvelli.

Ísland vann mikilvægan sigur á Úkraínu á dögunum og þarf að eiga sinn allra besta leik til að ná í úrslit gegn Englendingum sem unnu heimsmeistara Spánverja á dögunum.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 17. apríl

Besta deildin
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 1
19:00 Árborg-Uppsveitir (JÁVERK-völlurinn)

laugardagur 18. apríl

Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
00:00 Spánn-Úkraína (Nuevo Arcangel)
16:30 Ísland-England (Laugardalsvöllur)

Mjólkurbikar kvenna
12:00 Haukar-Smári (BIRTU völlurinn)
12:00 Keflavík-KR (Nettóhöllin)

Lengjubikar karla - B-deild, úrslit
15:00 Víkingur Ó.-Dalvík/Reynir (Ólafsvíkurvöllur)

Lengjubikar karla - C-deild, úrslit
13:00 KFR-Álftanes (Helluvöllur)

sunnudagur 19. apríl

Mjólkurbikar kvenna
14:00 FHL-Einherji (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Völsungur-Dalvík/Reynir (GPG völlurinn)
14:00 ÍA-Fjölnir (Akraneshöllin)
14:00 Selfoss-Augnablik (JÁVERK-völlurinn)
14:00 KÞ-KFR (Þróttheimar)
14:00 Fylkir-Grótta (tekk VÖLLURINN)
18:00 ÍR-Álftanes (Egilshöll)

Lengjubikar karla - B-deild, úrslit
13:00 Haukar-Fjölnir (Knatthús Hauka)

Lengjubikar karla - C-deild, úrslit
14:00 Álafoss-Hamar (Malbikstöðin að Varmá)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner
banner