Fotbolti.net
17.05.21 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Solskjær í skýjunum með að fá áhorfendur á Old Trafford

Ole Gunnar Solskjær.

Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: Getty Images

Um 10 þúsund áhorfendur geta mætt á Old Trafford á morgun þegar Manchester United mætir Fulham. Áhorfendur verða í síðustu tveimur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar.

United er þegar öruggt með sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næsta tímabil og Ole Gunnar Solskjær segist mjög spenntur fyrir því að taka aftur á móti stuðningsmönnum.
„Við höfum lengi beðið eftir því að geta tekið á móti stuðningsmönnum aftur," segir Solskjær.

„Við vonumst eftir því að þriðjudagurinn verði jákvæður dagur, félagið og stuðningsmenn sýni samstöðu og liðið spili góðan fótbolta. Vonandi munum við njóta samverunnar."

Maguire með í úrslitaleiknum?
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, verður ekki með í síðustu tveimur leikjum tímabilsins en hann er meiddur á ökkla. Vonast er til þess að han ngeti spilað gegn Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þann 26. maí.

Varnarleikur United hefur verið lélegur síðan Maguire meiddist og liðið hefur tapað báðum leikjunum.

„Við höfum vitað það allan tímann hversu góður hann er en kannski hafa einhverjir opnað augun núna þegar hann er ekki að spila. Harry er okkar leiðtogi og fyrirliði," segir Solskjær.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle508
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Nott. Forest6-35
15Aston Villa6-55
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.