Fotbolti.net
11.10.26 - 14:06
Brynjar Ingi Erluson

Valgeir gulltryggði sigurinn

Valgeir gulltryggði sigur Viborg

Valgeir gulltryggði sigur Viborg

Canon

Mynd: Viborg

Valgeir Lunddal Friðriksson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Viborg og gulltryggði 2-0 sigur á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Fjölnismaðurinn kom til Viborg frá Fortuna Düsseldorf í sumar og opnaði markareikning sinn hjá félaginu gegn Randers.

Viborg var einu marki yfir þegar Valgeir kom inn af bekknum og gulltryggði sigurinn. Liðið er nú í öðru sæti með 20 stig, fjórum á eftir toppliði FCK.

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem missti niður tveggja marka forskot gegn Silkeborg. Mótherjarnir skoruðu þrívegis í síðari hálfleik en Horsens bjargaði stigi seint í uppbótartíma og varð niðurstaðan 3-3 jafntefli.

Horsens er í sjötta sæti með tólf stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.